Ægisíða Bensínstöðin og dekkjaverkstæði N1 við Ægisíðu mega muna sin fífil fegurri. Húsinu hefur ekki verið við haldið en gámar og rusl eru á lóðinni.
Ægisíða Bensínstöðin og dekkjaverkstæði N1 við Ægisíðu mega muna sin fífil fegurri. Húsinu hefur ekki verið við haldið en gámar og rusl eru á lóðinni.
Andrés Magnússon andres@mbl.is Megn ónægja er meðal íbúa í Vesturbæ vegna bensínstöðvarlóðar N1 við Ægisíðu, sem hefur grotnað niður undanfarin ár, en uppi eru fyrirætlanir um byggingu allt að fimm hæða íbúðarhúsa þar með meira en 50 íbúðum. Íbúar í grenndinni segja langlundargeð sitt á þrotum.

Andrés Magnússon

andres@mbl.is

Megn ónægja er meðal íbúa í Vesturbæ vegna bensínstöðvarlóðar N1 við Ægisíðu, sem hefur grotnað niður undanfarin ár, en uppi eru fyrirætlanir um byggingu allt að fimm hæða íbúðarhúsa þar með meira en 50 íbúðum. Íbúar í grenndinni segja langlundargeð sitt á þrotum.

„Við íbúar höfum síðustu ár verið í góðu sambandi varðandi þetta mál og höfum aldrei orðið vör við nokkurt samráð frá borginni, hvað þá Festi,“ segir Ásdís Helgadóttir, íbúi við Hofsvallagötu.

„Okkur finnst þetta allt saman lykta af fúski og spillingu í kringum þessa lóð. Festi hefur látið húsið og lóðina drabbast niður svo árum skiptir. Það hefur verið heil gámabyggð á lóðinni hér árum saman, full af dekkjum, og ekki hefur Festi heldur hirt um það að laga skyggnið á húsinu.“

Ekki hirt um hverfið

Mikil umræða hefur verið um málið meðal Vesturbæinga á félagsmiðlum og kvarta margir undan því að ekkert tillit hafi verið tekið til þarfa hverfisins eða afleiðinganna.

„Við íbúarnir viljum að borgin sjái að sér og leysi lóðina til sín til að nýta hana undir innviði fyrir hverfið. Ástand innviða í Vesturbænum er bágborið, samanber vöntun á leikskólum og mygluskemmdir og viðhald í grunnskólunum,“ segir Ásdís. Mikil íbúðauppbygging standi til við Ánanaust, Granda, Birkimel og KR-svæðið, en innviðir fylgi þeirri íbúafjölgun ekki.

Festi gefnir milljarðar

Sérstaklega er gagnrýnt að borgin „gefi“ þannig Festi, eiganda N1, rándýran byggingarrétt, en lóðarleigan renni út eftir aðeins 33 mánuði.

Við blasir að byggingarland á þessum stað er eftirsótt og verðmætt, en byggingarverktakar og fjármálafyrirtæki meta söluvirði byggingarréttarins á um tvo milljarða kr., sé miðað við uppgefið byggingarmagn í kynningu Festar árið 2021.

„Þessi gjörningur hjá borginni að gefa lóðina á Ægisíðu 102 er mjög dapurlegur í ljósi þess að Festi fær á sama tíma að setja upp dælur úti á Granda á besta stað. Við íbúarnir viljum að borgin sjái að sér og leysi lóðina til sín til að nýta hana undir innviði fyrir hverfið,“ segir Ásdís.

Annar íbúi í hverfinu sem blaðið ræddi við furðaði sig á því að Festi skyldi hafa efnt til hönnunarsamkeppni á lóðinni með vitund Reykjavíkurborgar, en tveir af þremur dómnefndarmönnum voru á snærum Festar.

Þetta staðfesta tölvupóstar á milli Festar og Reykjavíkurborgar, sem íbúar fengu afhenta í krafti upplýsingalaga og Morgunblaðið hefur fengið afrit af. Þar er forsendan sú að hús á lóðinni verði rifin, þrátt fyrir að Borgarsögusafn hafi lagt til friðun á þeim og Minjastofnun stöðvað niðurrif Festar á skyggni hússins, helsta kennileiti þess. Íbúanum, sem ekki vill láta nafns síns getið, virðist sem borgin hafi gefið Festi frítt spil, sem m.a. sjáist af því að fyrirtækið hafi gert kauptilboð í viðliggjandi einbýlishús, gagngert til niðurrifs.

N1 á Ægisíðu

Fær milljarða og nýja stöð

Bensínstöð hefur verið um áratugaskeið við Ægisíðu, fyrst undir merkjum Esso en nú N1, dótturfélags Festar. Reykjavíkurborg á lóðina og leigir hana N1 undir þessa tilteknu starfsemi. Sá samningur rennur út eftir rúm tvö ár, en borgin hefur samið um að eftirláta Festi byggingarrétt og nýtt skipulag reitsins til allt annarra nota í nafni þéttingar byggðar og áforma um fækkun bensínstöðva í borginni. Talið er að Festi geti selt þann rétt fyrir um tvo milljarða kr. og verið laust allra mála. Er Festi þó bættur upp missirinn á Ægisíðu með leyfi til að setja upp sjálfvirkar bensíndælur við verslun Krónunnar á Fiskislóð, sem Festi rekur einnig.

Höf.: Andrés Magnússon