 Lék með FH til 13 ára aldurs, fór þá í Breiðablik (2003) og þaðan til Reading á Englandi 16 ára árið 2005.  Var í röðum Reading 2005-2011. Lánaður til Shrewsbury 2008 og Crewe 2009. Skoraði eitt mark í 5 leikjum með Shrewsbury í D-deild og 3 mörk í 15 leikjum með Crewe í C-deild

 Lék með FH til 13 ára aldurs, fór þá í Breiðablik (2003) og þaðan til Reading á Englandi 16 ára árið 2005.

 Var í röðum Reading 2005-2011. Lánaður til Shrewsbury 2008 og Crewe 2009. Skoraði eitt mark í 5 leikjum með Shrewsbury í D-deild og 3 mörk í 15 leikjum með Crewe í C-deild. Skoraði síðan 19 mörk í 42 leikjum með Reading í B-deild.

 Lánaður og síðan seldur til Hoffenheim í Þýskalandi. Skoraði 9 mörk í 36 leikjum í efstu deild 2010-12. Lánaður til Swansea 2012 og skoraði 7 mörk í 18 leikjum í ensku úrvalsdeildinni.

 Seldur til Tottenham og skoraði þar 8 mörk í 58 leikjum í úrvalsdeildinni 2012-2014.

 Seldur til Swansea og skoraði þar 27 mörk í 106 leikjum í úrvalsdeildinni 2014-2017. Leikmaður ársins tvö seinni tímabilin og er markahæsti leikmaður Swansea í úrvalsdeildinni frá upphafi með 34 mörk.

 Seldur til Everton 2017 fyrir 45 milljónir punda og er dýrasti leikmaður sem Swansea hefur selt og dýrasti sem Everton hefur keypt. Lék 136 úrvalsdeildarleiki fyrir Everton frá 2017 til 2021 og skoraði 25 mörk.

 Lék ekki knattspyrnu í tvö ár vegna kæru fyrir meint kynferðisbrot en spilaði 5 úrvalsdeildarleiki með Lyngby í Danmörku haustið 2023 og skoraði 2 mörk í bikarleik.

 Markahæsti landsliðsmaður Íslands með 27 mörk og 11. leikjahæstur með 80 landsleiki.