— Ljósmynd/Ari Páll Karlsson
Salka Sól Eyfeld segir mikið um að vera hjá sér núna. Hún segist aðallega vera að syngja, veislustýra eða að halda prjónakvöld á hótelum landsins. „Ég myndi alveg vilja skrá starfsheitið gleðigjafi eða skemmtikraftur hjá nafninu mínu í símaskránni,“ sagði Salka Sól í Ísland vaknar

Salka Sól Eyfeld segir mikið um að vera hjá sér núna. Hún segist aðallega vera að syngja, veislustýra eða að halda prjónakvöld á hótelum landsins. „Ég myndi alveg vilja skrá starfsheitið gleðigjafi eða skemmtikraftur hjá nafninu mínu í símaskránni,“ sagði Salka Sól í Ísland vaknar. Hún segist alltaf hafa verið góð í að gera marga mismunandi hluti í einu og að búa sér til verkefnin sjálf. Salka segist sátt og vera ánægð með að geta unnið við það sem henni finnst skemmtilegt. „Ég finn að þetta ár byrjar vel hjá mér.“ Lestu meira á K100.is.