Norður
♠ DG65
♥ 942
♦ 5
♣ K10763
Vestur
♠ 104
♥ K3
♦ Á10976432
♣ 9
Austur
♠ K9
♥ ÁD10875
♦ 8
♣ DG42
Suður
♠ Á8732
♥ G6
♦ KDG
♣ Á85
Suður spilar 3♠.
„Tveir-yfir-einum er krafa – það vita allir. En hversu langt nær sú krafa? Út yfir gröf og dauða?“ Magnús mörgæs var hugsi yfir spili úr dönsku deildinni þar sem sagnir þróuðust nákvæmlega eins á báðum borðum fram að ögurstund: Norður passaði, austur opnaði á 1♥, suður kom inn á 1♠, vestur sagði 2♦ (tveir-yfir-einum) og norður stökk í 3♠ – pass og pass. „Verður vestur að halda sögnum lifandi eða má hann passa? Ég bara spyr.“
Svör dönsku meistaranna voru misvísandi – annar passaði, hinn sagði 4♦ og sagnir enduðu í 4♥, einn niður. En passið kom vel út. Vörnin byrjaði á þremur efstu í hjarta og suður henti laufi í það síðasta. Hið sama gerði vestur. Austur skipti yfir í tígul og vörnin fékk á öll trompin sín fjögur með því að stinga tígul og lauf á víxl: 400 niður!
„Skemmtileg vörn, en kerfisvandinn er óleystur.“