Einar Lövdahl rithöfundur hefur náð að láta marga drauma sína rætast.
Einar Lövdahl rithöfundur hefur náð að láta marga drauma sína rætast. — Ljósmynd/Hörður Sveinsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Um hvað er bókin? „Bókin er um Ask, nýfullorðinn mann sem er hálfhræddur við lífið og ákveður að stinga af út á land þegar hann er kominn með nóg af öllu, ekki síst óþægilegum samskiptum. Þetta sama kvöld á hann að vera að sækja mömmu sína út…

Um hvað er bókin?

„Bókin er um Ask, nýfullorðinn mann sem er hálfhræddur við lífið og ákveður að stinga af út á land þegar hann er kominn með nóg af öllu, ekki síst óþægilegum samskiptum. Þetta sama kvöld á hann að vera að sækja mömmu sína út á flugvöll, sem hann hefur verið í reglulegu sambandi við en þó ekki hitt augliti til auglitis síðan hann var unglingur.“

Er Askur hefðbundinn
ungur karlmaður?

„Hann er það að ýmsu leyti – hann vill ná árangri og vera álitinn flottur, telur hlutverk sitt í ástarsambandi vera að vernda kærustuna, hefur alist upp í boltaíþrótt og á erfitt með að tjá sig um eigin líðan. En aftur á móti er hann viðkvæmari en margir strákar, held ég, og sér heiminn stundum svolítið á ská. Þótt sagan sé skáldskapur frá byrjun til enda er líklega margt líkt með okkur. Ég er bara heppnari en hann með rætur.“

Ertu búinn að upplifa drauminn eða halda draumarnir og markmiðin áfram að stækka?

„Ég er lánsamur og hef fengið að upplifa ýmsa af mínum helstu draumum, hvort sem þeir snúa að vinnu eða persónulegri hliðum lífsins. En í mér býr líka draumóra- og keppnismaður sem finnur sér stöðugt ný markmið. Til dæmis ætla ég mér að gefa meira út af skáldskap og tónlist.“

Hvað borðar þú í morgunmat?

„Ég borða nú yfirleitt bara heiðarlega seríósskál, einstaka sinnum hafragraut eða flatköku með smjöri og bananasneiðum. Um helgar er það heilög stund – ristað brauð með marmelaði.“

Áttu uppáhaldsflík?

„Ég fékk gullfallega peysu frá konunni og dætrum okkar tveimur í afmælisgjöf á dögunum sem ég held strax upp á. Svo keypti ég mér ofurmjúka – og mjög ameríska – peysu í fjölskyldufríi Bandaríkjunum í fyrrasumar. Þær eru báðar grænar, túlkist að vild.“

Hvaða óþarfa keyptir þú þér síðast?

„Ég er óspennandi týpa í þessari deild, kaupi mér sjaldan föt eða einhverja vitleysu á netinu. En um tvítugt keypti ég mér svakaleg „arkitektagleraugu“ án sjónstyrks fyrir talsverðan pening sem ég þorði síðan aldrei að nota nema í gríni.“

Hvaða hlutur í lífi þínu er ómissandi?

„Heiðarlega svarið er síminn, jafnvel þótt oft vildi ég helst kasta honum út í hafsauga. Þar að auki kemur ekkert í staðinn fyrir fyrsta kaffibolla dagsins.“

Ertu skipulagður?

„Þegar ég hef brennandi áhuga á einhverju, til dæmis bók í smíðum, þá fæ ég það þannig á heilann að planið mótar sig eiginlega sjálft í kollinum. Sem dæmi um markvisst skipulag, þá er ég vanur að móta beinagrind að bókarkafla áður en ég sest niður og skrifa hann. En ég er ekki nógu sleipur í að sinna mörgum hlutum samtímis sem bitnar oft á mér í hversdagsamstrinu.“

Hvaða bók er
á náttborðinu?

Salka Valka eftir Halldór Laxness, af því að ég var svo heppinn að komast í frábæran leshóp með eintómum drottningum, og líka bókin The Creative Act eftir Rick Rubin.“

Hvaða sjónvarpsþátt
ertu að horfa á?

„Þessa dagana erum við konan mín að horfa á One Day sem heyrir til tíðinda því annars erum við þekkt í vinahópnum mínum fyrir að horfa bara á norrænar dramaseríur.“

Hver er uppáhaldsborgin þín og af hverju?

„Stokkhólmur, hún er falleg og stendur undir því að vera stórborg án þess að vera yfirþyrmandi að stærð. En annars blundar í mér undarleg nostalgía gagnvart amerískum borgum almennt, enda bjó ég í Pittsburgh sem barn.“

Ef þú gætir farið hvert sem er í ferðalag, hvert væri ferðinni heitið?

„Ég á alltaf Ísafjörð inni.“

Hvað gerir þú til þess að slaka á?

„Ég hef aldrei verið mikill sundkall en þegar við fjölskyldan fluttum aftur heim í haust, eftir þrjú ár í Svíþjóð, meðtók ég loksins töframátt gufubaðsins almennilega. Annars næ ég bestu núvitundinni í körfubolta eða þegar ég er einn að skrifa eða semja.“

Höf.: Guðrún Selma Sigurjónsdóttir |