Agnar Rafn J. Levy fæddist 30. janúar 1940. Hann lést 16. febrúar 2024.

Útför hans fór fram 1. mars 2024.

Agnar í Hrísakoti er dáinn. Farinn frá okkur. Það koma margar minningar í huga minn. Ekki hvað síst stjórnarfundir Tónlistarskólans. Þú varst frábær, léttur og skemmtilegur og barst hag skólans fyrir brjósti fyrst og fremst.

Agnar minn, ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að vinna með þér í starfi og leik. Þú varst heill, þú varst framsýnn og blandaðir þetta þínum frábæra húmor.

Ekki má gleyma kaffiboðunum hjá Ölmu á afmælisdegi Fríðu Levy. Þar komuð þið Hlíf og við Siggi og vorum aðalgestirnir. Þar flugu mörg gullkornin.

Takk fyrir áralanga vináttu.

Elsku Hlíf, þér og allri fjölskyldunni votta ég mína dýpstu samúð.

Ingibjörg (Lilla Páls).