Ferðalög Lausnin greiðir leiðina fyrir fólk til að nýta tímann betur á ferðalögum með því að útbúa ferðaáætlun.
Ferðalög Lausnin greiðir leiðina fyrir fólk til að nýta tímann betur á ferðalögum með því að útbúa ferðaáætlun. — Morgunblaðið/Eggert
Brátt hillir undir að hægt verði að bóka heildarferð til útlanda með aðstoð gervigreindar í kerfi sem hannað er af íslenska hugbúnaðarfélaginu Travelshift, sem er móðurfélag Guide to Europe. Slík lausn verður sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum

Arinbjörn Rögnvaldsson

arir@mbl.is

Brátt hillir undir að hægt verði að bóka heildarferð til útlanda með aðstoð gervigreindar í kerfi sem hannað er af íslenska hugbúnaðarfélaginu Travelshift, sem er móðurfélag Guide to Europe. Slík lausn verður sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum.

„Lausnin gerir það að verkum að fólk getur fundið talsvert ódýrari frí, þar sem það getur séð öll tilboð frá öllum aðilum innan Evrópu, á sama staðnum samtímis og fær fyrir vikið lægri verð á ferðapakkann,“ segir Saga Úlfarsdóttir, vörustjóri hjá Travelshift, í samtali við Morgunblaðið. Fyrirtækið hefur unnið að þróun á algrími í gervigreind, sem gerir fólki kleift að bóka flug, hótel, skoðunarferðir og bíla á einum og sama staðnum í einni bókun.

Fjölbreytt úrval ferða

Saga segir að fyrirtækið muni bjóða upp á tengingar við flugfélög, hótel og ferðaþjónustufyrirtæki innan Evrópu og geta þeir sem hyggja á ferðalög um álfuna því valið um 50 þúsund fjölbreyttar ferðir á sama staðnum. Aðspurð segir hún að fyrirtækið ætli sér að taka þátt á bókunarmarkaði þar bókunarsíður á borð við Booking.com og fleiri verða keppinautar þeirra.

„Booking hefur reynt en ekki alveg tekist að bjóða upp á sams konar lausn í einni bókun,“ segir hún.

Bestu ferðaáætlanirnar

Gervigreindin tekur saman ferðapakka fyrir alla áfangastaði í Evrópu með því að framkvæma greiningu á margvíslegum landfræðilegum gögnum og upplýsingum um vegi og aksturstíma, áhugaverða staði til að skoða, afþreyingu, gönguleiðir og veitingastaði, svo fátt eitt sé nefnt. Á þeim grunni útbýr gervigreindin ferðaáætlun í samræmi við óskir og smekk viðkomandi.

„Lausnin getur komið með uppástungur um það hvert fólk ætti að fara til að finna afþreyingu sem hentar því,“ útskýrir hún.

„Tíminn í ferðalögum er almennt dýrmætur hjá fólki og lausnin er miðuð að því að besta ferðadagsplön, svo ferðafólk geti heimsótt sem flesta staði meðan á ferðalaginu stendur. Lausnin getur þannig skipulagt ferðalög í gegnum margar borgir og lönd Evrópu í einni bókun, en ferðatíminn takmarkast við tvær vikur.“

Á 16 tungumálum

Það sem veitir lausninni sérstöðu er að hún býr til lýsingar á 16 tungumálum, þar á meðal íslensku, á öllum vörum fyrirtækisins, hvort sem það er ferðapakki, skoðunarferðir eða bílar.

„Gervigreindin er með svokallaðan málgervil sem getur snarað allt vöruúrvalið yfir á 16 tungumál, þannig að allir notendur geta lesið um ferðina á sínu eigin tungumáli. Allt þetta efni gerir það að verkum að þeir sem eru að leita að ferðum í gegnum Google geta fundið ferðina sem þeir eru að leita að hjá okkur,“ útskýrir Saga.

„Lausnin er einnig með snjallmennið Travis, sem fólk getur talað við á ensku og lýst fyrir því draumaferðalaginu, ef fólk vill til dæmis fara til áfangastaðar sem hefur milt loftslag og góðan mat,“ segir Saga að lokum.

Lausnin felur í sér

Fólk getur keypt og bókað alla þætti ferðalagsins á einum stað.

Gervigreindin býr til ferðapakka sem byggist á úrvinnslu margvíslegra gagna í samræmi við óskir viðkomandi.

Lausnin miðar að því að fólk nýti tímann sem best með því að útbúa ferðadagsplön og er á 16 tungumálum, þar með talið íslensku.

Höf.: Arinbjörn Rögnvaldsson