[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Fólk heldur að hér verði ekki þverfótað fyrir Íslendingum en úti í náttúrunni er alls ekki mannmargt. Hér er fullt af skemmtilegum gönguleiðum og tilvalið að sjá meira af eyjunni heldur en lífið á sundlaugarbakkanum.

Fáir Íslendingar vita jafnmikið um Tenerife og fjölmiðlakonan Snæfríður Ingadóttir sem hefur dvalið þar margoft síðasta áratug. Í dag býr hún á þessari paradísareyju ásamt eiginmanni og yngri dætrunum tveimur en þau vinna nú hörðum höndum að því að gera þar upp gamalt hús. Snæfríður veit fátt skemmtilegra en að ganga úti í náttúrunni og vill að Íslendingar sem eyjuna heimsækja njóti þess líka. Hún hefur nú gefið út rafbókina Gönguævintýri á Tenerife sem inniheldur upplýsingar um 33 mismunandi gönguleiðir. Þar geta allir fundið gönguleið við sitt hæfi og notið náttúru, útsýnis og veðurblíðu.

Erum komin með sturtu

Blaðamaður sló á þráðinn til Snæfríðar og byrjaði á að spyrja hvernig gengi með húsið, en áhugasamir geta fylgst með framkvæmdum fjölskyldunnar á Instagram-síðunni ohyesyoucan.

„Það gengur. Það er vissulega búið að ganga á ýmsu en það var svo sem við því að búast þegar maður kaupir gamalt hús sem búið var að standa autt í tólf til fimmtán ár. Svo keyptum við í raun ekki hús heldur lóð með óskráðu húsi, svo það hefur verið fyrsta verkefnið að fá húsið skráð,“ segir hún og hlær.

„Við búum núna í húsinu, þó það hafi verið ansi frumstætt í byrjun. En nú erum við komin með bæði sturtu og þvottavél svo það væsir ekki um okkur,“ segir Snæfríður, en húsið er í nágrenni við höfuðborgina Santa Cruz á norðausturhluta eyjunnar.

Spurð um aðdraganda bókarinnar, segir Snæfríður að fjölskyldan hafi alltaf gengið mikið um eyjuna, og það löngu áður en hugmyndin að bókinni kviknaði.

„Við fjölskyldan erum búin að ganga allar leiðirnar sem eru í bókinni og sumar margoft. Ég er búin að vera með bókina á teikniborðinu undanfarin fimm ár. Það skemmtilegasta sem við gerum hér er að fara út að ganga og skoða nýjar slóðir.“

Er týpísk miðaldra kona

Snæfríður leggur áherslu á að bókin er ekki einungis hugsuð fyrir þá sem kalla sig göngugarpa.

„Þú þarft ekki að vera hörkugöngumaður til að geta notað bókina. Ég myndi alls ekki kalla mig göngugarp. Ég er týpísk miðaldra kona í sæmilegu formi sem finnst skemmtilegast að ganga sirka átta til tólf kílómetra leiðir. Mér finnst best að leggja af stað snemma morguns og klára gönguna upp úr hádegi og enda þá á góðum hádegisverði þegar sólin er hæst á lofti,“ segir hún og segir gönguleiðirnar 33 vera út um alla eyju og þar má finna eitthvað við allra hæfi.

„Leiðirnar eru frá tveimur kílómetrum upp í sautján. Léttustu gönguleiðirnar eru á flatlendi meðfram sjónum en aðrar reyna meira á og eru upp um fjöll og niður í gil. Landslagið hér er ofboðslega fjölbreytt,“ segir Snæfríður og segir að sér hafi þótt erfitt að velja hvað hún ætti að setja í bókina.

„Ég valdi bara eftir mínum smekk, en ég er pínu lofthrædd, sérstaklega þar sem er bratt niður í sjó. Þannig að það eru ekki margar svoleiðis leiðir í bókinni.“

Eins og ratleikur fyrir börn

Margar af gönguleiðunum henta vel fyrir fjölskyldur með börn að sögn Snæfríðar.

„Stelpurnar mínar hafa gengið með okkar flestar þessara leiða. Fyrir tíu árum fórum við kannski auðveldustu leiðirnar og vöndum stelpurnar snemma við að fara í gönguferðir. Nú er það þannig að þær biðja sjálfar um að fara í göngu. Hér er ótrúlega gott gönguleiðakerfi með merkingum sem þarf bara að elta sem er næstum eins og ratleikur fyrir krakka,“ segir hún og nefnir að undirlagið á eyjunni er mjög mismunandi sem gerir gönguleiðirnar enn fjölbreyttari.

„Þú getur gengið á sandi eða hrauni, eftir fjallastígum, í gegnum regnskóg, pálmalundi eða innan um kanarísk furutré svo eitthvað sé nefnt,“ segir hún og ekki skemmir veðrið fyrir.

„Hér er alltaf gott veður og hægt að ganga léttklæddur. Heima er þetta alltaf smá barningur hvernig á að klæða sig í göngur. Svo eru hér engin hættuleg dýr og engir snákar eða skógarmítlar.“

Týndur í hafsjó alnetsins

Bókin Gönguævintýri á Tenerife skiptist upp í sex kafla og þar má finna ýmis kort og mikið af upplýsingum. Hún er aðeins fáanleg sem rafbók og hyggst Snæfríður ekki gefa hana út á prenti.

„Það er dýrt að gefa út bækur og ég held að það sé þægilegt að hafa hana sem rafbók. Það er svo auðvelt að lesa hana í símanum og eins er fullt af linkum sem hægt er að ýta á. Til dæmis þarf stundum að sækja um leyfi til að ganga um ákveðin náttúrusvæði hér á eyjunni og þá er hægt að ýta á link sem leiðir fólk áfram inn á skráningarsíður,“ segir hún og nefnir að þótt til sé mikið efni á vefnum um gönguleiðir á Tenerife, viti fólk ekki alltaf hvar það á að byrja.

„Stundum er maður alveg týndur í hafsjó alnetsins. Þessi handbók er því góð til þess að fá innblástur, til að koma þér af stað og hún útskýrir það helsta sem göngufólk þarf að vita um eyjuna og gönguleiðirnar sem eru í boði. Bókin er líka full af myndum og textinn er stuttur og hnitmiðaður þannig að hún er mitt á milli bókar og netsins. Svo bendi ég gjarnan á veitingastaði sem gott er að enda á.“

Af sundlaugarbakkanum

Nú er Tenerife orðin einn vinsælasti ferðamannastaður Íslendinga og halda margir að þar sé aðeins að finna strandlíf og partístand, en Snæfríður leggur áherslu á að þar sé sannarlega margt annað í boði.

„Fólk heldur að hér verði ekki þverfótað fyrir Íslendingum en úti í náttúrunni er alls ekki mannmargt. Hér er fullt af skemmtilegum gönguleiðum og tilvalið að sjá meira af eyjunni heldur en lífið á sundlaugarbakkanum. Hér eru til dæmis minjar frá seinni heimsstyrjöldinni, áhugaverður arkitektúr og fjölbreytt flóra, þannig að það er margt að sjá,“ segir hún.

„Persónulega finnst mér suðurhlutinn þar sem allir túristarnir eru alls ekki vera fallegasti hluti eyjunnar. Menningin, gróðurinn og fallegustu byggingar eyjunnar eru norðan megin. Og þar er alls ekki alltaf rigning eins og sumir halda!“ segir Snæfríður og mælir með að fólk skreppi aðeins út fyrir ferðamannasvæðin og jafnvel að það fái sér góðan göngutúr í guðsgrænni náttúrunni. Þá er ekki verra að vera með handbókina góðu í símanum sínum en hana má finna á lifiderferdalag.is.