Eloy Casagrande trommuleikari.
Eloy Casagrande trommuleikari. — AFP/Ethan Miller
Dulúð Bandaríska málmbandið Slipknot hefur hafið æfingar með nýjum trymbli, að því er fram kemur á samfélagsmiðlum, en sá gamli, Jay Weinberg, var rekinn frá borði í nóvember. Ekki kemur fram hver maðurinn er en hávær orðrómur hefur verið á kreiki…

Dulúð Bandaríska málmbandið Slipknot hefur hafið æfingar með nýjum trymbli, að því er fram kemur á samfélagsmiðlum, en sá gamli, Jay Weinberg, var rekinn frá borði í nóvember. Ekki kemur fram hver maðurinn er en hávær orðrómur hefur verið á kreiki um aðkomu Eloys Casagrandes, sem yfirgaf Sepultura á dögunum, korteri fyrir kveðjutúr brasilíska bandsins um heiminn. Brotinn Promark-kjuði í myndbandinu þykir renna stoðum undir það en Casagrande notar þá tegund. Næstu tónleikar Slipknot verða á Sick New World-hátíðinni í Las Vegas 27. apríl, þannig að eigi síðar en þá ætti málið að lýsast upp.