Viktor Orri Árnason og Álfheiður Erla Guðmunds­dóttir fagna útgáfu plötunnar Poems með tónleikum í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld, laugardaginn 16. mars, kl. 20. Viktor leikur á píanó og Álfheiður syngur en þau koma fram ásamt strengjakvartett

Viktor Orri Árnason og Álfheiður Erla Guðmunds­dóttir fagna útgáfu plötunnar Poems með tónleikum í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld, laugardaginn 16. mars, kl. 20. Viktor leikur á píanó og Álfheiður syngur en þau koma fram ásamt strengjakvartett. Platan Poems var gefin út af Deutsche Grammophon í nóvember síðastliðnum. Við gerð hennar sóttu Viktor og Álfheiður innblástur í ljóð íslenskra skálda. Á tónleikunum hljóma einnig íslensk þjóðlög í útsetningum Viktors.