Ia Genberg
Ia Genberg
Tilkynnt hefur verið hvaða verk hljóta tilnefningu til Alþjóðlegu Booker-verðlaunanna í ár. Þrettán verk eru á svokölluðum langlista en til greina koma alþjóðleg verk sem gefin voru út í enskri þýðingu í Bretlandi eða á Írlandi

Tilkynnt hefur verið hvaða verk hljóta tilnefningu til Alþjóðlegu Booker-verðlaunanna í ár. Þrettán verk eru á svokölluðum langlista en til greina koma alþjóðleg verk sem gefin voru út í enskri þýðingu í Bretlandi eða á Írlandi. Meðal tilnefndra verka eru Smáatriðin eftir Iu Genberg sem nýverið kom út í íslenskri þýðingu Þórdísar Gísladóttur og The Silver Bone eftir Andrej Kúrkov sem hlaut Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness 2022. Stuttlisti Booker-verðlaunanna verður opinberaður 9. apríl og verðlaunaverkið kynnt 21. maí.