Katrin Heymann
Katrin Heymann
Kvartettinn Ómar heldur tónleika í dag kl. 15.15 í Neskirkju við Hagatorg á vegum 15:15-tónleikasyrpunnar undir yfirskriftinni „Léttúð, dulúð og litaskrúð“. Kvartettinn skipa þau Ármann Helgason, Jón Sigurðsson, Katrin Heymann og Össur Ingi Jónsson

Kvartettinn Ómar heldur tónleika í dag kl. 15.15 í Neskirkju við Hagatorg á vegum 15:15-tónleikasyrpunnar undir yfirskriftinni „Léttúð, dulúð og litaskrúð“. Kvartettinn skipa þau Ármann Helgason, Jón Sigurðsson, Katrin Heymann og Össur Ingi Jónsson. Flutt verða verk eftir Darius Milhaud, Jean-Michel Damase og Malcolm Arnold. Einnig verða frumflutt þrjú einleiksverk eftir Gunnar Haraldsson.