Sigrún Sesselja Bárðardóttir fæddist 3. mars 1928. Hún lést 21. febrúar 2024.

Útför hennar fór fram 14. mars 2024.

Einu sinni átti ég ömmu sem ól mig upp og hugsaði um mig. Svo átti ég hana ekki lengur. Löngu síðar og algjörlega að óvörum eignaðist ég aðra ömmu sem ég fékk að hafa í mörg ár, það fylgdi meira að segja afi með. Mikið er ég þakklát fyrir þau og allar samverustundirnar og spjallið við ömmu Sesselju. Lífsreynd, lífsglöð og uppspretta allskonar þekkingar. Hennar verður sárt saknað af mér og strákunum. Hvíl í friði elsku amma.

Guðbjörg Svava
Ragnarsdóttir.