Gylfi Þór Sigurðsson er kominn með leikheimild hjá Val og getur því formlega hafið að leika með liðinu. Á fimmtudag skrifaði hinn 34 ára gamli Gylfi Þór undir tveggja ára samning við Hlíðarendafélagið og mun í fyrsta sinn á ferlinum spila í efstu deild hér á landi
Gylfi Þór Sigurðsson er kominn með leikheimild hjá Val og getur því formlega hafið að leika með liðinu. Á fimmtudag skrifaði hinn 34 ára gamli Gylfi Þór undir tveggja ára samning við Hlíðarendafélagið og mun í fyrsta sinn á ferlinum spila í efstu deild hér á landi. Þar sem hann er kominn með leikheimild gæti Gylfi Þór spilað sinn fyrsta keppnisleik fyrir Val gegn ÍA í undanúrslitum deildabikarsins 20. mars næstkomandi.