Engin furða þótt sumum þyki einboðið að segja „einmanna“ í stað einmana, sem virðist torskilið. Við erum menn, líka þegar við erum ein. En Orðsifjabók tekur af allan vafa

Engin furða þótt sumum þyki einboðið að segja „einmanna“ í stað einmana, sem virðist torskilið. Við erum menn, líka þegar við erum ein. En Orðsifjabók tekur af allan vafa. Hvorugkynsnafnorðið man þýðir einvera (löngu dottið úr ræðu og riti í þeirri merkingu) og talað var um að búa í einmani. Og þá blasir einmanaleiki við.