Í nýjasta þætti Spursmála takast þeir Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóri Fiskeldis Austfjarða, og Jón Kaldal, talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins, á um sjókvíaeldi við strendur Íslands. Hafa skiptar skoðanir verið á fiskeldi hér á landi…

Í nýjasta þætti Spursmála takast þeir Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóri Fiskeldis Austfjarða, og Jón Kaldal, talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins, á um sjókvíaeldi við strendur Íslands. Hafa skiptar skoðanir verið á fiskeldi hér á landi að undanförnu, þá einna helst þegar litið er til umhverfissjónarmiða. Þingkonan Diljá Mist Einarsdóttir fer yfir það sem var efst á baugi í fréttum líðandi viku ásamt Mörtu Maríu Winkel Jónasdóttur, fréttastjóra dægurmála Morgunblaðsins. Rýndu þær í yfirvofandi forsetakosningar og mögulega frambjóðendur þar sem mörg ný nöfn hafa verið nefnd í því samhengi síðustu daga.