Joey King fer með annað aðalhlutverkið.
Joey King fer með annað aðalhlutverkið. — AFP/Valerie Macon
Seigla We Were the Lucky Ones nefnist nýr myndaflokkur sem Hulu-veitan tekur til sýninga í lok mánaðarins og byggist á metsölubók Georgiu Hunter sem aftur er innblásin af fjölskyldusögu hennar. Joey King og Logan Lerman leika pólsk systkini af…

Seigla We Were the Lucky Ones nefnist nýr myndaflokkur sem Hulu-veitan tekur til sýninga í lok mánaðarins og byggist á metsölubók Georgiu Hunter sem aftur er innblásin af fjölskyldusögu hennar. Joey King og Logan Lerman leika pólsk systkini af gyðingaættum sem gera allt sem í þeirra valdi stendur til að komast af meðan á helförinni stendur og fjölskyldu þeirra hefur verið sundrað. King viðurkenndi á kynningarfundi með blaðamönnum að myndaflokkurinn innihéldi mikinn sársauka og þjáningu en um leið heilmikla von.