Tónlistarkonan Sunny kynnti nýja lagið sitt Skilur mig í þætti Heiðars Austmann, Íslenskri tónlist. Í þættinum gerir Heiðar íslenskri tónlist hátt undir höfði. „Ég hlustaði og hugsaði um að vera leitandi að ást

Tónlistarkonan Sunny kynnti nýja lagið sitt Skilur mig í þætti Heiðars Austmann, Íslenskri tónlist. Í þættinum gerir Heiðar íslenskri tónlist hátt undir höfði. „Ég hlustaði og hugsaði um að vera leitandi að ást. Ég hugsaði, hvað þrái ég mest við ástina? Að einhver skilji mann, sú tilfinning er mögnuð. Við höfum jafnvel lokað á ástina af ótta við að vera særð en við þurfum ekki að vera eins þó við getum elskað og skilið hvert annað,“ segir hún meðal annars í kynningunni á laginu. Hægt er að hlusta á lagið og kynninguna í heild sinni á K100.is.