Bleikt Ryan Gosling sló í gegn á Óskarnum með lagi úr Barbie.
Bleikt Ryan Gosling sló í gegn á Óskarnum með lagi úr Barbie. — AFP/Patrick T. Fallon
Pam Abdy, yfirmaður hjá kvikmyndaframleiðandanum Warner Bros, segist með gleði vilja gera Barbie 2, eftir að leikstjóri fyrri Barbie-myndarinnar „kveikti í áhorfendum um allan heim“

Pam Abdy, yfirmaður hjá kvikmyndaframleiðandanum Warner Bros, segist með gleði vilja gera Barbie 2, eftir að leikstjóri fyrri Barbie-myndarinnar „kveikti í áhorfendum um allan heim“. Þetta kom fram í samtali Abdy við blaðamann BBC, Katie Razzall.

Barbie-myndin halaði inn 1,4 milljarða bandaríkjadala (eða um 190 milljarða íslenskra króna) og varð hún með því söluhæsta kvikmynd ársins 2023. Abdy, sem er bæði stjórnarmaður og framkvæmdastjóri Warner Bros Motion Picture Group, segir báða aðila „alltaf vera að tala um“ að gera framhaldsmynd en að það yrði á endanum að vera ákvörðun leikstjórans Gretu Gerwig.