Kaplakriki Liðsmenn og þjálfarar FH með sigurlaun sín eftir að liðið vann í karla- og kvennaflokki í bikarkeppni FRÍ í Kaplakrika í gær.
Kaplakriki Liðsmenn og þjálfarar FH með sigurlaun sín eftir að liðið vann í karla- og kvennaflokki í bikarkeppni FRÍ í Kaplakrika í gær. — Morgunblaðið/Óttar Geirsson
FH kom, sá og sigraði í bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Íslands, FRÍ, sem fór fram á heimavelli Hafnarfjarðarliðsins í Kaplakrika í gær. Liðið hlaut samtals 92 stig og sigraði í bæði karla- og kvennakeppninni, og þar með heildarstigakeppninni

FH kom, sá og sigraði í bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Íslands, FRÍ, sem fór fram á heimavelli Hafnarfjarðarliðsins í Kaplakrika í gær.

Liðið hlaut samtals 92 stig og sigraði í bæði karla- og kvennakeppninni, og þar með heildarstigakeppninni. Breiðablik var í öðru sæti með 73 stig og ÍR í því þriðja með 69 stig. Karlalið FH var með 41 stig og kvennalið FH með 51 stig.

Þrjú mótsmet voru sett á mótinu. Erna Sóley Gunnarsdóttir úr ÍR setti mótsmet í kúluvarpi kvenna með kasti upp á 16,62 metra. Íslandsmet hennar er 17,92 metrar.

Júlía Kristín Jóhannesdóttir úr Breiðabliki setti mótsmet í 60 metra grindahlaupi kvenna. Hún kom í mark á tímanum 8,59 sek., sem er aðeins þremur hundruðustu frá aldursflokkameti hennar í greininni, 8,56 sek.

Elías Óli Hilmarsson úr FH jafnaði þá mótsmetið í hástökki karla með stökki upp á 2,00 metra.