Manchester United lagði erkifjendur sína í Liverpool að velli, 4:3, eftir framlengdan spennuleik í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu karla á Old Trafford í Manchester í gær. Varamaðurinn Amad Diallo tryggði Man

Manchester United lagði erkifjendur sína í Liverpool að velli, 4:3, eftir framlengdan spennuleik í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu karla á Old Trafford í Manchester í gær. Varamaðurinn Amad Diallo tryggði Man. United sigurinn í uppbótartíma framlengingarinnar. Í undanúrslitum mætast Coventry City og Manchester United annars vegar og Manchester City og Chelsea hins vegar. Báðir leikirnir fara fram á Wembley, annar 20. apríl og hinn daginn eftir. » 26