Leikarar Jeremy Allen White og Molly Gordon fara með hlutverk í The Bear.
Leikarar Jeremy Allen White og Molly Gordon fara með hlutverk í The Bear. — AFP/Robyn Beck
Framleiðsla á fjórðu þáttaröð The Bear mun hefjast um leið og tökum á þriðju þáttaröðinni, sem nú stendur yfir, lýkur. Þetta herma heimildir Variety

Framleiðsla á fjórðu þáttaröð The Bear mun hefjast um leið og tökum á þriðju þáttaröðinni, sem nú stendur yfir, lýkur. Þetta herma heimildir Variety. Framleiðslufyrirtækið FX tilkynnti nýverið að fjórða þáttaröðin yrði gerð en talsmaður þess afþakkaði að tjá sig um málið.

Þriðja þáttaröðin er væntanleg á streymisveituna Hulu í júní en ljósmyndum af leikhópnum við störf hefur verið lekið á síðustu vikum. Ekki er ljóst hvort fjórða serían verður sú síðasta.

Fyrstu tvær þáttaraðirnar hafa hlotið jákvæð viðbrögð og aðstand­endurnir verið verðlaunaðir fyrir vel unnið verk á Emmy-verðlaununum, Golden Globes og SAG Awards.