Stjórn Play og Birgir Jónsson forstjóri flugfélagsins hafa gert samkomulag um starfslok hans hjá félaginu. Félagið sendi frá sér tilkynningu þess efnis í gær. Einar Örn Ólafsson, núverandi stjórnarformaður félagsins, tekur við af Birgi sem forstjóri

Stjórn Play og Birgir Jónsson forstjóri flugfélagsins hafa gert samkomulag um starfslok hans hjá félaginu. Félagið sendi frá sér tilkynningu þess efnis í gær. Einar Örn Ólafsson, núverandi stjórnarformaður félagsins, tekur við af Birgi sem forstjóri.

Einar Örn er einn stærsti einstaki hluthafi félagsins og hefur setið sem stjórnarformaður síðan í apríl 2021. Hann hefur dregið framboð sitt til stjórnar til baka en stjórnarkjör fer fram á aðalfundi félagsins á fimmtudaginn, 21. mars.

„Ég er fullur tilhlökkunar að takast á við þetta verkefni. Eftir kröftugt uppbyggingarstarf síðustu ára undir öflugri forystu Birgis er félagið á ákveðnum tímamótum. Sem stærsti einstaki hluthafi félagsins vil ég fylgja fjárfestingu minni eftir. Ég þekki vel til starfsemi og starfsmanna Play og sé mörg tækifæri og spennandi viðfangsefni fram undan í rekstrinum. Ég er þakklátur stjórn Play fyrir traustið og vil líka þakka Birgi sérstaklega fyrir framlag hans til Play og ánægjulegt og gott samstarf,“ er haft eftir Einari í tilkynningu. Einar er stjórnarformaður Terra hf. og var áður forstjóri Fjarðarlax og Skeljungs. Hann er með MBA-gráðu frá NYU Stern School of Business og B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

„Það hefur verið ævintýri líkast að taka þátt í uppbyggingu Play. Á tiltölulega skömmum tíma er orðið til öflugt íslenskt lággjaldaflugfélag með framúrskarandi vöru og þjónustu og bjarta framtíð. Virk samkeppni í flugi sem skilar sér í lægri fargjöldum, fjölbreyttum áfangastöðum og verðmætum erlendum gestum er sérstaklega mikilvæg fyrir eyju eins og okkar. Slík samkeppni varðar hagsmuni allra Íslendinga. Ég geng þess vegna ákaflega stoltur frá borði. Play hefur nú slitið barnsskónum og er orðið þroskað flugfélag. Ég hef átt gott og náið samband við Einar og félagið er í góðum höndum hjá honum. Ég hlakka til að sjá félagið blómstra undir hans forystu. Ég vil þakka viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir einkar ánægjulegt samstarf. Ég mun svo kveðja stórkostlegan hóp starfsmanna á næstu dögum,“ er haft eftir Birgi, en hann mun starfa áfram hjá félaginu til 2. apríl og í framhaldinu vera félaginu til ráðgjafar næstu mánuði.