Konan sem kærði knattspyrnumanninn Albert Guðmundsson fyrir kynferðisbrot í ágúst á síðasta ári hefur kært niðurfellingu málsins til ríkissaksóknara. Það er RÚV sem greinir frá þessu en héraðssaksóknari felldi niður málið í lok síðasta mánaðar og því var Åge Hareide, þjálfara íslenska liðsins, frjálst að velja Albert í landsliðshópinn fyrir komandi landsliðsverkefni gegn Ísrael í undanúrslitum umspils um sæti í lokakeppni EM 2024 en leikurinn fer fram í Búdapest á morgun.
„Það var ákveðið að þjálfarinn mætti velja hann í landsliðið af því að þetta var fellt niður. En við teljum að hann ætti að klára þetta verkefni. Stjórn ákvað það að landsliðsverkefnið telst vera hafið, leikmannahópurinn var opinberaður og Albert mun klára þetta verkefni núna,“ sagði Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ í samtali við RÚV.
Formaðurinn var því næst spurður hvort til greina kæmi að taka Albert úr hópnum.
„Það sem stjórn KSÍ hafði að leiðarljósi voru reglur sem voru ekki alveg nógu skýrar. Við vildum gera þær skýrari, það er að segja reglur varðandi ákæruferlið. Stjórnin tók það til skoðunar á síðasta fundi að Albert muni klára þetta verkefni, og síðan munum við skoða út frá því,“ bætti formaðurinn við.