Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson tók þátt í sinni fyrstu æfingu með Val á Hlíðarenda í gærmorgun. Gylfi, sem er 34 ára gamall, skrifaði í síðustu viku undir tveggja ára samning við Valsmenn og mun hann leika með liðinu á komandi tímabili í Bestu deildinni
Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson tók þátt í sinni fyrstu æfingu með Val á Hlíðarenda í gærmorgun. Gylfi, sem er 34 ára gamall, skrifaði í síðustu viku undir tveggja ára samning við Valsmenn og mun hann leika með liðinu á komandi tímabili í Bestu deildinni. Miðjumaðurinn lék síðast með Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni en rifti samningi sínum við danska félagið í janúar. Hans fyrsti leikur fyrir félagið verður gegn ÍA í deildabikarnum í kvöld.