Meiddur Botman verður frá keppni næstu mánuðina vegna meiðsla.
Meiddur Botman verður frá keppni næstu mánuðina vegna meiðsla. — AFP/Darren Staples
Hollenski knattspyrnumaðurinn Sven Botman verður frá keppni næstu níu mánuðina eða svo eftir að hann sleit krossband í leik með Newcastle gegn Manchester City í enska bikarnum um síðustu helgi. Botman er lykilmaður hjá Newcastle og hefur leikið 17 leiki með liðinu á yfirstandandi tímabili

Hollenski knattspyrnumaðurinn Sven Botman verður frá keppni næstu níu mánuðina eða svo eftir að hann sleit krossband í leik með Newcastle gegn Manchester City í enska bikarnum um síðustu helgi. Botman er lykilmaður hjá Newcastle og hefur leikið 17 leiki með liðinu á yfirstandandi tímabili. Ekki er um fyrstu hnémeiðsli varnarmannsins á leiktíðinni að ræða, því hann var frá keppni í þrjá mánuði er hann meiddist í september á síðasta ári.