Krossbandsslit Tristan Freyr Ingólfsson sleit krossband á dögunum.
Krossbandsslit Tristan Freyr Ingólfsson sleit krossband á dögunum. — Ljósmynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson
Óheppnin eltir knattspyrnumanninn Tristan Frey Ingólfsson, varnarmann Stjörnunnar, á röndum. Fyrr í mánuðinum varð hann fyrir því óláni að slíta krossband í hné í þriðja sinn á ferlinum. Tristan Freyr er 24 ára gamall vinstri bakvörður sem sleit fyrst krossband í júlí árið 2021

Óheppnin eltir knattspyrnumanninn Tristan Frey Ingólfsson, varnarmann Stjörnunnar, á röndum. Fyrr í mánuðinum varð hann fyrir því óláni að slíta krossband í hné í þriðja sinn á ferlinum. Tristan Freyr er 24 ára gamall vinstri bakvörður sem sleit fyrst krossband í júlí árið 2021. Hann sneri aftur á völlinn sumarið 2022, náði að spila þrjá leiki í Bestu deildinni en sleit krossband að nýju í þeim þriðja og missti því af öllu síðasta tímabili.