Handknattleiksmaðurinn Eiður Rafn Valsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við uppeldisfélag sitt Fram. Eiður Rafn, sem er einungis 18 ára gamall, hefur verið í nokkuð stóru hlutverki hjá Fram á yfirstandandi tímabili þar sem liðið er í 6
Handknattleiksmaðurinn Eiður Rafn Valsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við uppeldisfélag sitt Fram. Eiður Rafn, sem er einungis 18 ára gamall, hefur verið í nokkuð stóru hlutverki hjá Fram á yfirstandandi tímabili þar sem liðið er í 6. sæti deildarinnar. Þá hefur hann raðað inn mörkum fyrir ungmennalið Fram, sem er á toppnum í 1. deildinni. Eiður Rafn er hægri hornamaður sem á að baki fjölda leikja fyrir yngri landslið Íslands.