„Með þessari niðurstöðu skapast grundvöllur fyrir þá félagsmenn sem unna félaginu og fengu ekki að mæta á síðasta aðalfund til að boða til nýs aðalfundar til að endurreisa félagið,“ segir Hilmar Garðars Þorsteinsson, lögmaður hjá Málsvara

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

„Með þessari niðurstöðu skapast grundvöllur fyrir þá félagsmenn sem unna félaginu og fengu ekki að mæta á síðasta aðalfund til að boða til nýs aðalfundar til að endurreisa félagið,“ segir Hilmar Garðars Þorsteinsson, lögmaður hjá Málsvara.

Héraðsdómur Reykjavíkur ógilti í gær þrjár ákvarðanir sem teknar voru á aðalfundi MÍR sumarið 2022. Kjör stjórnar félagsins er ógilt og jafnframt sú ákvörðun að selja húsnæði félagsins á Hverfisgötu 105 í Reykjavík og láta andvirði sölu fasteignarinnar mynda stofnfé Menningarsjóðs MÍR. Mikla athygli vakti þegar málið kom upp á síðasta ári en eins og kom fram í Morgunblaðinu höfðuðu þrír félagsmenn í MÍR, Menningartengslum Íslands og Rússlands, áður Ráðstjórnarríkjanna, mál gegn samtökunum.

Segir í dómnum að boðun aðalfundar MÍR hafi ekki uppfyllt það skilyrði að allir félagsmenn hafi átt kost á að vita af fundinum. „Að mati dómsins braut aðferðin við boðun til aðalfundar gegn meginreglu félagaréttar um jafnræði félagsmanna og því var fundarboðunin ekki lögmæt,“ segir meðal annars í dómnum en boðað var til fundarins með auglýsingu í glugga húsnæðis félagsins. „Því var ekki hægt að taka lögmætar ákvarðanir á fundinum sem væru bindandi fyrir félagið og félagsmenn.“

Ívar H. Jónsson og kona hans, Ragnhildur Rósa Þórarinsdóttir, stóðu að stefnunni ásamt listakonunni Kjuregej Alexöndru Argunovu. Segir Hilmar, lögmaður stefnenda, að málaferlin hafi „hindrað áform stjórnarinnar um að selja undan félaginu einu verðmætu eign þess, skjóta eignunum undan í einhvern sjóð, sem stjórnin ræður en aðrir félagar MÍR hafa enga aðkomu að“.