Viktor Orri Árnason fiðlu- og víóluleikari og Rubin Kodheli sellóleikari halda tónleika í Hannesarholti í kvöld, föstudagskvöldið 22. mars, kl. 20 en yfirskrift þeirra er The Sound of Being. „Á tónleikunum blanda Viktor og Rubin hefðbundnum…

Viktor Orri Árnason fiðlu- og víóluleikari og Rubin Kodheli sellóleikari halda tónleika í Hannesarholti í kvöld, föstudagskvöldið 22. mars, kl. 20 en yfirskrift þeirra er The Sound of Being. „Á tónleikunum blanda Viktor og Rubin hefðbundnum hljóðfærum og nútímatækni til að kanna möguleika og dýpt hljóðfæranna, setja hljóðfærin í nýtt samhengi. Leitast verður við að brúa bilið milli hins áþreifanlega og hins óáþreifanlega,“ segir m.a. í tilkynningu.