Gunnar eins og hann kann best við sig; með gítar í hendi.
Gunnar eins og hann kann best við sig; með gítar í hendi. — Morgunblaðið/Golli
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Tónskáldið Gunnar Þórðarson nefnist heimildarmynd í tveimur hlutum eftir Ágúst Guðmundsson og Jón Þór Hannesson sem Ríkissjónvarpið sýnir að kvöldi skírdags og föstudagsins langa. Þar verður sjónum beint að ævintýralegum ferli Gunnars og rakin þroskasaga tónskálds sem aldrei fór í tónlistarskóla

Tónskáldið Gunnar Þórðarson nefnist heimildarmynd í tveimur hlutum eftir Ágúst Guðmundsson og Jón Þór Hannesson sem Ríkissjónvarpið sýnir að kvöldi skírdags og föstudagsins langa.

Þar verður sjónum beint að ævintýralegum ferli Gunnars og rakin þroskasaga tónskálds sem aldrei fór í tónlistarskóla. „Mörg vinsælustu lög síðustu áratuga eru frá Gunnari komin: Bláu augun þín, Þú og ég, Gaggó Vest, Vetrarsól, Þitt fyrsta bros og þannig mætti lengi telja. Árið 2005 voru hljóðrituð lög hans orðin 500 og síðan hefur bæst við. Á síðari árum hefur hann samið hljómsveitarverk og kórverk í klassískum stíl, enn fremur óperu sem þykir marka tímamót í íslenskri tónlistarsögu,“ segir í kynningu RÚV.

Gunnar vakti fyrst athygli í Hljómum frá Keflavík og síðar lék hann með og samdi tónlist fyrir Trúbrot, Ðe Lónlí Blú Bojs, Sléttuúlfana og Ríó og marga fleiri.