Tilbúnir Åge Hareide og Jóhannes Karl Guðjónsson aðstoðarþjálfari búa liðið undir úrslitaleikinn gegn Úkraínu í Wroclaw á þriðjudagskvöldið.
Tilbúnir Åge Hareide og Jóhannes Karl Guðjónsson aðstoðarþjálfari búa liðið undir úrslitaleikinn gegn Úkraínu í Wroclaw á þriðjudagskvöldið. — Ljósmynd/Szilvia Micheller
Åge Hareide, þjálfari karlalandsliðsins í fótbolta, segir að íslensku landsliðsmennirnir verði að vera afar klókir í úrslitaleik sínum gegn Úkraínu í Wroclaw á þriðjudag. Úkraínska liðið sé firnasterkt en Ísland geti sigrað

Í Búdapest

Víðir Sigurðsson

vs@mbl.is

Åge Hareide, þjálfari karlalandsliðsins í fótbolta, segir að íslensku landsliðsmennirnir verði að vera afar klókir í úrslitaleik sínum gegn Úkraínu í Wroclaw á þriðjudag.

Úkraínska liðið sé firnasterkt en Ísland geti sigrað. Úkraína vann Bosníu naumlega, 2:1, í fyrrakvöld á meðan Ísland vann Ísrael 4:1 í umspilinu fyrir EM og Hareide varði miklum hluta gærdagsins í að skoða úkraínska liðið.

„Þeir spila mikið maður á mann, ekki mikið í svæðum eins og við gerum. Það gæti verið okkur í hag. Úkraína er lið sem við getum sigrað en við þurfum að vera geysilega klókir. Við þurfum að draga þá út úr stöðum og vera útsmognir.

Fótbolti er stundum eins og skák, við þurfum að reyna að þröngva þeim yfir í erfiðar stöður þar sem við getum nýtt okkar hæfileika. Þess vegna er ég svo ánægður með að vera með Albert Guðmundsson í liðinu núna. Hann er góður í að stinga sér á milli línanna og halda boltanum og það er erfitt að hafa gætur á honum,“ sagði Hareide við Morgunblaðið á hóteli landsliðsins í Búdapest í gær.

„Úkraína er með hægri vænginn sinn úr úkraínsku deildinni og vinstri vænginn úr ensku úrvalsdeildinni og með fullt af góðum leikmönnum. Ekki bara þessa átta sem spila í bestu deildum Evrópu heldur líka leikmenn frá Shakhtar sem er alltaf í Meistaradeildinni.

En við verðum að trúa því að við getum unnið þá. Ég sagði við strákana: nú þurfið þið að reyna að skrifa söguna sjálfir. Sama hvað þú gerir, þú þarft að trúa á það sem þú gerir. Og ef þú getur nýtt sameiginlega orku ellefu einstaklinga er hægt að gera ótrúlega hluti. Ég held að við getum komið Úkraínumönnum á óvart," sagði Hareide.

Úkraína tefldi fram tiltölulega ungu liði gegn Bosníu en enginn í byrjunarliðinu var eldri en 27 ára.

„Já, þeir eru með ungt lið og hafa komið strákum yfir í ensku úrvalsdeildina eftir að þeir hafa staðið sig vel með úkraínsku liðunum. Svo eru þeir með tvo leikmenn frá Girona sem er í toppbaráttu á Spáni. Annar þeirra (Artem Dovbyk) náði sér ekki á strik með Midtjylland en skorar nú og skorar á Spáni og hann gerði sigurmarkið gegn Bosníu. Hann er mjög góður. Sama með vinstri kantmanninn frá Chelsea (Mudryk), þannig að Guðlaugur Victor þarf að vera tilbúinn í sprettina. En hann verður það, ég hef enn ekki séð neinn stinga hann af!“ sagði Hareide.

Hvers konar leik megum við búast við í Wroclaw á þriðjudag?

„Við unnum Bosníu á Laugardalsvellinum í haust og Bosníu tókst að hrista upp í úkraínska liðinu sem náði ekki að skapa sér mikið af færum. Ég sá Úkraínu gera jafntefli við Ítalíu í nóvember og beita þar mjög góðum skyndisóknum.

Bosnía passaði upp á að Úkraína næði ekki skyndisóknum og það verður líka í forgangi hjá okkur. Við getum lært af því hvernig Bosnía höndlaði pressu úkraínska liðsins og teljum okkur vita hvernig við þurfum að spila gegn þeim. Þar skiptir miklu máli að finna svæðin á milli línanna. Þetta er allt saman skák.

Síðan verða taugarnar þandar. Það er mikið í húfi fyrir bæði lið en ég held að pressan sé meiri á úkraínska liðinu. Ég held að við getum verið tiltölulega afslappaðir, eins og við lögðum áherslu á fyrir Ísraelsleikinn, við þurfum að nota sköpunargleðina og frelsið þegar við spilum á fremsta vallarþriðjungi. Ef við erum vel skipulagðir í varnarleiknum getum við sleppt fram af okkur beislinu í sóknarleiknum. Það hentar okkar strákum vel, tel ég,“ sagði Åge Hareide.

Höf.: Víðir Sigurðsson