Af þeim 326 götum þar sem Kópavogur er veghaldari eru aðeins þrjár eftir þar sem hámarkshraði er 50 km/klst. Er þetta í kjölfar umfangsmikilla breytinga þar sem hámarkshraði var lækkaður í samtals 57 götum bæjarins.
Umhverfissvið Kópavogsbæjar auglýsti fyrr í mánuðinum þessa breytingu í Stjórnartíðindum að fengnu samþykki lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og eftir samþykki bæjarstjórnar Kópavogs. Hefur auglýsingin þegar öðlast gildi sem þýðir að þessar hraðatakmarkanir eru nú í gildi.
Af þessum 326 götum voru fyrir breytingu 265 götur með hámarkshraðann 30 km/klst, enda eru flestar götur húsagötur. Þá voru 60 götur með 50 km/klst hámarkshraða og ein gata, Salavegur, var með 40 km/klst hámarkshraða. Þess ber að geta að Vegagerðin er veghaldari á helstu stofnbrautum.
Af þeim 57 götum þar sem hámarkshraðinn var lækkaður eru nú 28 með 40 km/klst hámarkshraða og í 29 götum er hámarkshraðinn nú 30 km/klst.
Á þremur götum verður hámarkshraðinn sem fyrr segir áfram 50 km/klst, en þær götur eru; Digranesvegur milli Hlíðarhjalla og Dalvegar, Vatnsendavegur og Dalvegur milli Fífuhvammsvegar og Digranesvegar.
Meðal gatna þar sem hámarkshraði er lækkaður úr 50 km/klst í 30 km/klst eru meðal annars Auðbrekka, Dalbrekka, Skemmuvegur, litagötur Smiðjuvegs, Bakkabraut, Hafnarbraut, Þinghólsbraut og Hagasmári.
Meðal gatna þar sem hámarkshraði er lækkaður úr 50 km/klst í 40 km/klst eru meðal annars Hlíðarhjalli, aðalbraut Smiðjuvegs, Túnbrekka, Vatnsendahvarf, Ögurhvarf, Bæjarlind og Smárahvammsvegur. thorsteinn@mbl.is