Bókarkápan á þýsku.
Bókarkápan á þýsku.
Blokkin á heimsenda, ­eftir Arndísi Þórarinsdóttur og Huldu Sigrúnu Bjarnadóttur, er ein sex bóka sem tilnefndar eru til þýsku barnabókaverðlaunanna í flokki skáldsagna fyrir börn

Blokkin á heimsenda, ­eftir Arndísi Þórarinsdóttur og Huldu Sigrúnu Bjarnadóttur, er ein sex bóka sem tilnefndar eru til þýsku barnabókaverðlaunanna í flokki skáldsagna fyrir börn. Um 7.500 barnabækur eru gefnar út árlega í Þýskalandi og voru 670 þeirra lagðar fram til verðlaunanna í ár. Blokkin á heimsenda kom út hjá Forlaginu árið 2020 eftir að hafa borið sigur úr býtum í samkeppninni um Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur.