Valur tryggði sér í gærkvöldi sæti í úrslitaleik deildabikars kvenna í knattspyrnu með öruggum heimasigri á Stjörnunni, 4:0, í undanúrslitum keppninnar. Staðan í hálfleik var 2:0 eftir glæsimark frá Amöndu Andradóttur og Hailey Whitaker skoraði svo skömmu fyrir leikhlé
Valur tryggði sér í gærkvöldi sæti í úrslitaleik deildabikars kvenna í knattspyrnu með öruggum heimasigri á Stjörnunni, 4:0, í undanúrslitum keppninnar. Staðan í hálfleik var 2:0 eftir glæsimark frá Amöndu Andradóttur og Hailey Whitaker skoraði svo skömmu fyrir leikhlé. Í síðari hálfleik bætti Amanda við öðru marki sínu og Helena Ósk Hálfdánardóttir komst einnig á blað. Valur mætir Breiðabliki í úrslitaleik á Hlíðarenda á laugardag.