Garðabær Arnar Guðjónsson er iðulega líflegur á hliðarlínunni.
Garðabær Arnar Guðjónsson er iðulega líflegur á hliðarlínunni. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Arnar Guðjónsson hættir störfum sem þjálfari karla- og kvennaliða Stjörnunnar í körfuknattleik að þessu keppnistímabili loknu. Arnar hefur þjálfað karlalið Stjörnunnar frá árinu 2018 og hefur það þrisvar orðið bikarmeistari og tvisvar deildarmeistari undir hans stjórn

Arnar Guðjónsson hættir störfum sem þjálfari karla- og kvennaliða Stjörnunnar í körfuknattleik að þessu keppnistímabili loknu.

Arnar hefur þjálfað karlalið Stjörnunnar frá árinu 2018 og hefur það þrisvar orðið bikarmeistari og tvisvar deildarmeistari undir hans stjórn. Arnar hefur síðan einnig þjálfað kvennaliðið sem vann 1. deildina undir hans stjórn í fyrra og er nú í efri hluta úrvalsdeildarinnar.