Norður
♠ ÁKG987653
♥ 32
♦ –
♣ K5
Vestur
♠ D
♥ KD74
♦ 432
♣ DG943
Austur
♠ 104
♥ 98
♦ G108765
♣ Á102
Suður
♠ 2
♥ ÁG1065
♦ ÁKD9
♣ 876
Suður spilar 7G.
„Ég verð að sýna ykkur spil með Zia.“ Það var stund milli stríða á Íslandsmótinu og nokkrir hungraðir úlfar sátu við langborð í Menntaskólanum við Ármúla og hámuðu í sig rækjusamlokur. Gunnlaugur Sævarsson teiknaði upp suðurhöndina og lagði fyrir úlfana: „Austur opnar á 3♦.“
Spilið kom upp á Bridge Base Online í síðustu viku. Zia passaði 3♦, vestur sagði 3G og norður doblaði – pass, pass og 4♦ í vestur. „Og nú segir makker í norður 5♦.“
Úlfarnir svöngu voru einhuga um að túlka 5♦ sem sterk spil með báða háliti og vildu gera eins og Zia – stökkva í 7♥. Norður sagði 7♠, sem Zia breytti snarlega í 7G. Allir pass, hjartakóngur út og nákvæmlega þrettán slagir.
Já – Íslandsmótið er heldur dauflegt miðað við stuðið á BBO.