Brons Heimir Hallgrímsson náði sögulegum árangri með Jamaíku.
Brons Heimir Hallgrímsson náði sögulegum árangri með Jamaíku. — Ljósmynd/@jff_football
Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í jamaíska karlalandsliðinu í knattspyrnu unnu til bronsverðlauna í Þjóðadeild Norður- og Mið-Ameríku í fyrrinótt. Jamaíka hafði betur gegn Panama, 1:0, í leiknum um 3

Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í jamaíska karlalandsliðinu í knattspyrnu unnu til bronsverðlauna í Þjóðadeild Norður- og Mið-Ameríku í fyrrinótt.

Jamaíka hafði betur gegn Panama, 1:0, í leiknum um 3. sætið í Arlington í Texas-ríki í Bandaríkjunum. Dexter Lembikisa skoraði sigurmarkið á 41. mínútu.

Þetta er í fyrsta sinn sem Jamaíka vinnur til verðlauna í Þjóðadeildinni en Heimir tók við þjálfun liðsins í september árið 2022.