Nóbelsverðlaunaskáld Jon Fosse.
Nóbelsverðlaunaskáld Jon Fosse. — Morgunblaðið/ÞÖK
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Öll góð list, innst inni, snýst um það sama: Að taka hið einstaka, hið algerlega sértæka, og gera það altækt eða almennt. Listin sameinar hið sértæka hinu algilda með listrænni tjáningu. Hún útrýmir ekki sérstöðunni heldur leggur áherslu á…

„Öll góð list, innst inni, snýst um það sama: Að taka hið einstaka, hið algerlega sértæka, og gera það altækt eða almennt. Listin sameinar hið sértæka hinu algilda með listrænni tjáningu. Hún útrýmir ekki sérstöðunni heldur leggur áherslu á hana, lætur það sem er frábrugðið og framandi skína skýrt í gegn. Stríð og list eru andstæður, rétt eins og stríð og friður eru andstæður – svo einfalt er það. List er friður.“

Þannig skrifar norska leikskáldið og Nóbelsverðlaunahöfundurinn Jon Fosse í ávarpi sínu í tilefni af alþjóðlega leiklistardeginum sem haldinn er hátíðlegur í dag, 27. mars, fyrir tilstuðlan Alþjóðaleiklistarstofnunarinnar (ITI), en Hafliði Arngrímsson íslenskaði. Íslenska ávarpið í ár samdi leikstjórinn Gréta Kristín Ómarsdóttir. Hefðin er sú að ávörpin eru flutt á leiksviðum landsins fyrir sýningar á þessum degi. Ávörpin má lesa í heild á mbl.is.

Leikhúsið bjargaði lífi mínu

„Ég á stundum erfitt með að trúa á leikhúsið, þetta þversagnakennda samskiptaform þar sem staður er stund. Þennan óarðbæra fagvettvang þar sem má hugsa hið óhugsandi en úrræðin anna aldrei öllum hugmyndunum. Ég á stundum erfitt með að trúa á þessa sleipu list sem framleiðir merkingu með röð blekkinga,“ skrifar Gréta Kristín í ávarpi sínu. „Leikhús bjargaði lífi mínu. Það var niðurstaða sem ég komst að eftir tveggja ára rannsóknarferli í meistaranámi í leikstjórn við Listaháskólann í Helsinki. Sem barn var ég svo lánsöm að finna leiklist og sögur sem athvarf frá óvinveittu umhverfi og flóknum sársauka. Ég hefði allt eins getað ratað í önnur efni og meira eyðileggjandi, en fyrir einhverja lifandis lukku þá fékk amma mín þá flugu í höfuðið að bjóða mér, tveggja ára gamalli, á Dýrin í Hálsaskógi í Þjóðleikhúsinu.

Þar fangaði leikhúsið mig, löngu áður en aðrar flóttaleiðir opnuðu gin sitt. Því stend ég sjálf í þeirri þversögn að vera þar sem ég ætti alls ekki að vera. Ég ætti hvorki að vera starfandi leikstjóri, dramatúrg né dósent í sviðslistum við listaháskóla. Ég kem af efnalitlu alþýðufólki og ólst upp á afskekktum stöðum úti á landi þar sem fótbolti og gagnkynhneigð voru einu viðurkenndu farvegirnir til þess að vera ígildi manneskju. Ég átti hvorki fyrirmyndir né sjálfsagt erindi eða ástæðu til þess að daga uppi í sviðslistum og gera leiklist að mínu ævistarfi. En það var einmitt fyrirmyndaskorturinn sem krafði mig alla tíð um eigið fordæmisgildi, og það er erindisleysið sem krefur mig sífellt um erindi mitt og ástæðu: Titrandi barnatrúin á mátt leikhússins sem leyfði mér að finna og verða til þó ótrúlegt væri með öllu.

Ekkert okkar á að vera hérna, en við eigum öll heima hérna. Ekkert okkar á sjálfkrafa tilkall til þess að framleiða endanlega merkingu hlutanna, það umboð er ekki hægt að erfa, kaupa eða eigna sér með vísan í einhvers konar hlutlausa, algilda snilligáfu. En við eigum öll sögur og heima innra með okkur sem hafa margslungið erindi og við þurfum öll á hvert öðru að halda til þess að gefa sögum okkar merkingu og skapa heiminn sem við viljum búa í. […] Máttur leikhússins er háður vilja okkar og getu til þess að trúa. Í leikhúsi getum við flogið og flakkað milli vídda, sigrað dreka og sungið börn aftur til lífsins. Við krefjumst þess af kollegum okkar í leikhúsinu að þeir trúi og við bjóðum áhorfendum okkar að trúa. Getum við þá ekki sjálf trúað? Getum við trúað því að Hedda Gabler sé brún, að álfakóngurinn sé fatlaður eða að Lilli klifurmús sé hinsegin? Getum við trúað því að leikhúsið breyti heiminum?

Í lokin kvikna ljósin og þarna eru þau aftur. Kannski hefur ekkert gerst og ekkert hreyfst í heiminum nema lítið rykkorn á kápu áhorfanda á þriðja bekk. […] Og kannski er allt breytt innra með einu barni, sem hugsar nú eitthvað sem áður var óhugsandi og trúir á eitthvað sem áður var ómögulegt. Kannski hefur myndast pláss þar sem áður var ekkert, kannski er merking orðin til sem engin áður merkti og kannski er heimurinn orðinn örlítið betri, nú þegar ljósin kvikna, þegar þau hneigja sig og setja hjartað fyrir ofan heilann.“ silja@mbl.is