Pétur Óskarsson er nýr formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.
Pétur Óskarsson er nýr formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.
„Þetta er galin hugmynd. Bara versta hugmynd sem er til og versta hugmynd sem er til til þess að auka skatttekjur ríkissjóðs.“ Þessum orðum fer Pétur um þá hugmynd sem víða er hreyft að ferðaþjónusta verði færð úr lægra þrepi virðisaukaskatts, 11%, í 24%

„Þetta er galin hugmynd. Bara versta hugmynd sem er til og versta hugmynd sem er til til þess að auka skatttekjur ríkissjóðs.“

Þessum orðum fer Pétur um þá hugmynd sem víða er hreyft að ferðaþjónusta verði færð úr lægra þrepi virðisaukaskatts, 11%, í 24%. Hann tók við formennsku í SAF í liðinni viku en hefur starfað í ferðaþjónustu í tæpa fjóra áratugi. Pétur er nýjasti gestur Dagmála.

„Það hefur verið talað um að þarna verði hægt að sækja hugsan­lega 27 milljarða en það er bara excel-æfing þar sem þú tekur eina breytu og hækkar bara virðisaukaskattinn,“ segir Pétur en bendir á að verðteygni á þessum markaði sé mikil og að nú þegar séu augljós teikn á lofti um að Ísland sé orðið of dýr áfangastaður. Fólk sem reiðubúið sé að verja talsverðu fé í ferðalög og afþreyingu sé farið að horfa í aðrar áttir en hingað til lands.

Upplýsir Pétur að sérfræðingar hafi að undanförnu skoðað möguleg áhrif hækkunar virðisaukaskattsins á ferðaþjónustuna og ­þjóðarbúið. Bráðabirgðaniðurstöður séu afgerandi, jafnvel þótt ekki sé tekið inn í reikninginn að í kortunum sé samdráttur í greininni miðað við óbreytta verðlagningu.

„Þar er niðurstaðan sú að þetta hefði neikvæð áhrif á greinina, þetta myndi draga úr hagvexti á Íslandi og þetta myndi auðvitað líka veikja krónuna, og þegar upp er staðið, sem er kannski merkilegast af öllu, að þessi matarhola sem menn búast við að komast þarna í verður að engu út af áhrifunum sem það hefur á eftirspurnina.“

Blikur á lofti

Pétur segir margt benda til þess að ferðaþjónustan standi frammi fyrir miklum áskorunum á þessu ári. „Útlitið er ekki alltof bjart,“ segir hann og bendir á að strax í fyrra hafi ferðaþjónustuaðilar fengið vísbendingar um það að utan að verðlagningin hér á landi væri farin að standa eftirspurninni eftir ferðum hingað fyrir þrifum. Nú séu að opnast markaðir í Asíu, Afríku og Suður-Ameríku sem opnuðust talsvert á eftir okkar markaði eftir kórónuveirufaraldurinn. Nú sjái fólk, sem hafi fjármuni til þess, tækifæri til að fara á þessar framandi slóðir í stað þess að halda í norðurátt og alla leið til Íslands.

Þrátt fyrir þessa stöðu er Pétur bjartsýnn fyrir hönd íslenskrar ferðaþjónustu. Hann bendir á að uppbygging á mikilvægum ferðamannastöðum hafi gengið vel og að það sé allt annað fyrir okkur að taka á móti tveimur milljónum ferðamanna á ári nú en fyrir sjö til átta árum.