Meirihlutinn í Hveragerði hefur lagt til að Pétur G. Markan biskupsritari verði næsti bæjarstjóri í stað Geirs Sveinssonar. Sendi meirihlutinn frá sér tilkynningu þessa efnis í gær. Framsóknarflokkur og O-listi skipa meirihlutann sem ætlar að …
Meirihlutinn í Hveragerði hefur lagt til að Pétur G. Markan biskupsritari verði næsti bæjarstjóri í stað Geirs Sveinssonar. Sendi meirihlutinn frá sér tilkynningu þessa efnis í gær.
Framsóknarflokkur og O-listi skipa meirihlutann sem ætlar að leggja tillöguna fram á aukafundi bæjarstjórnar nk. þriðjudag, 2. apríl. Pétur hefur verið biskupsritari undanfarið og stýrt samskiptamálum kirkjunnar. Þar áður var hann sveitarstjóri í Súðavík.