Leysingar Alþýðuhúsið á Siglufirði.
Leysingar Alþýðuhúsið á Siglufirði.
Listahátíðin Leysingar verður haldin í Alþýðuhúsinu á Siglufirði föstudaginn langa, hinn 29. mars, og laugardaginn 30. mars, eins og undanfarin ár, með þátttöku fjölda listamanna víðs vegar að í bland við heimamenn

Listahátíðin Leysingar verður haldin í Alþýðuhúsinu á Siglufirði föstudaginn langa, hinn 29. mars, og laugardaginn 30. mars, eins og undanfarin ár, með þátttöku fjölda listamanna víðs vegar að í bland við heimamenn. Segir í tilkynningu að þar mætist ólíkir straumar og listform sem opni glugga í allar áttir og gefi þátttakendum tækifæri til að láta ljós sitt skína, kynnast öðru skapandi fólki og mynda tengsl. Dagskrána má sjá inni á vef Fjallabyggðar en þar má finna gjörninga, myndlistarsýningu, ljóðaupplestra, fyrirlestur og tónleika. Þá er tekið fram að allir séu velkomnir meðan húsrúm leyfi og tekið sé við frjálsum framlögum í anddyri Alþýðuhússins á viðburðinum.