Reynd Reynsluboltinn Hildigunnur Einarsdóttir glímir við meiðsli.
Reynd Reynsluboltinn Hildigunnur Einarsdóttir glímir við meiðsli. — Ljósmynd/Jon Forberg
Handknattleikskonurnar Hildigunnur Einarsdóttir og Alfa Brá Oddsdóttir hafa dregið sig úr landsliðshópi Íslands fyrir leikina gegn Lúxemborg og Færeyjum í byrjun apríl. Ísland mætir Lúxemborg ytra 3

Handknattleikskonurnar Hildigunnur Einarsdóttir og Alfa Brá Oddsdóttir hafa dregið sig úr landsliðshópi Íslands fyrir leikina gegn Lúxemborg og Færeyjum í byrjun apríl. Ísland mætir Lúxemborg ytra 3. apríl og Færeyjum heima þann 8. Með sigri í báðum tryggir Ísland sér sæti á lokamóti Evrópukeppninnar undir lok árs. Engir leikmenn voru kallaðir inn í staðinn en Arnar Pétursson landsliðsþjálfari valdi 21 leikmann til æfinga fyrir leikina tvo.