Stjarnan Patrekur Jóhannesson tekur við kvennaliði Stjörnunnar.
Stjarnan Patrekur Jóhannesson tekur við kvennaliði Stjörnunnar. — Morgunblaðið/Eggert
Patrekur Jóhannesson mun taka við sem þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar í handknattleik eftir yfirstandandi tímabil. Sigurgeir Jónsson klárar tímabilið og lætur svo af störfum. Patrekur þjálfaði karlaliðið í upphafi leiktíðar en hætti með liðið vegna anna í öðrum störfum innan Stjörnunnar

Patrekur Jóhannesson mun taka við sem þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar í handknattleik eftir yfirstandandi tímabil. Sigurgeir Jónsson klárar tímabilið og lætur svo af störfum. Patrekur þjálfaði karlaliðið í upphafi leiktíðar en hætti með liðið vegna anna í öðrum störfum innan Stjörnunnar. Patrekur var meðal fremstu handknattleiksmanna Íslands á sínum tíma. Lék hann 243 landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði 634 mörk.