Burstahús Framkvæmdir eru langt komnar og styttist í opnunina.
Burstahús Framkvæmdir eru langt komnar og styttist í opnunina.
Þjónustustöð og veitingaskáli sem reistur hefur verið við Markarfljótsbrú, við afleggarann að veginum að Landeyjahöfn, verður opnaður síðari hluta maímánaðar. Svarið ehf. stendur að þessu verkefni. Sveinn Waage markaðsstjóri fyrirtækisins lýsir…

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Þjónustustöð og veitingaskáli sem reistur hefur verið við Markarfljótsbrú, við afleggarann að veginum að Landeyjahöfn, verður opnaður síðari hluta maímánaðar. Svarið ehf. stendur að þessu verkefni. Sveinn Waage markaðsstjóri fyrirtækisins lýsir málinu þannig að nú sé að koma fram á sjónarsviðið ný kynslóð greiðasölustaða við þjóðveginn. „Þetta er bensínstöð án eldsneytis,“ segir Sveinn og á þar við að fyrir utan bygginguna verði rafhleðslustöðvar en ekki sala á bensíni eða olíu.

Austur við Markarfljót er nú komið 550 fermetra timburhús í langbæjarstíl, sem setur sterkan svip á umhverfið. Inni í húsinu verður veitingasalur og verslun með ýmsum nauðsynjum sem viðskiptavinir munu yfirleitt nálgast með sjálfsafgreiðslu. Einnig verður í húsinu hreinlætisaðstaða og upplýsingaþjónusta. Þar verður áhersla lögð á að sinna fólki á leiðinni til Vestmannaeyja.

Um það bil tíu kílómetrar eru frá skálanum nýja að Landeyjahöfn. Staðurinn er fjölfarinn, svo sem af fólki á leiðinni um Suðurland sem ætlar til dæmis í Mýrdal eða enn lengra austur á bóginn. Margir fara þarna líka um á leiðinni í ferjuna, en Herjólfur siglir milli lands og Eyja sjö ferðir á dag þegar mest er. sbs@mbl.is