Reyndur Daninn Rasmus Christiansen er reynslumikill miðvörður.
Reyndur Daninn Rasmus Christiansen er reynslumikill miðvörður. — Ljósmynd/ÍBV
Danski knattspyrnumaðurinn Rasmus Christiansen hefur samið við ÍBV og mun leika með liðinu á komandi tímabili. Rasmus er 34 ára gamall miðvörður. Hann lék með ÍBV frá 2010 til 2012. Rasmus hefur einnig leikið með Aftureldingu, Val, KR og Fjölni hér á landi

Danski knattspyrnumaðurinn Rasmus Christiansen hefur samið við ÍBV og mun leika með liðinu á komandi tímabili. Rasmus er 34 ára gamall miðvörður. Hann lék með ÍBV frá 2010 til 2012. Rasmus hefur einnig leikið með Aftureldingu, Val, KR og Fjölni hér á landi. ÍBV leikur í 1. deild á komandi tímabili eftir að hafa fallið úr Bestu deildinni á því síðasta. Rasmus lék með Aftureldingu á síðasta ári er liðið endaði í öðru sæti 1. deildar.