— Morgunblaðið/Eggert
Mjög góðar horfur eru fyrir skíðaiðkendur um nær allt land yfir páskana. Veðurútlit er gott í dag og næstu daga, en á laugardag og sunnudag gæti þykknað upp norðaustan- og austanlands. Mikil aðsókn hefur verið á stærstu skíðasvæðum, eins og í…

Mjög góðar horfur eru fyrir skíðaiðkendur um nær allt land yfir páskana. Veðurútlit er gott í dag og næstu daga, en á laugardag og sunnudag gæti þykknað upp norðaustan- og austanlands. Mikil aðsókn hefur verið á stærstu skíðasvæðum, eins og í Bláfjöllum, á Ísafirði og í Hlíðarfjalli, enda veðrið verið gott. Fjölmargir voru í Bláfjöllum í gær og þeir sem fóru á efstu tinda fengu frábært útsýni að eldgosinu á Reykjanesskaga, þar sem útblástur frá gígunum myndaði mikla skýjabólstra í háloftunum. » 2 og 4