Kamilla Bretadrottning
Kamilla Bretadrottning
Kamilla Bretadrottning sagði í gær að Katrín prinsessa af Wales væri mjög þakklát fyrir þann mikla fjölda skilaboða sem sér hefðu borist eftir að Katrín tilkynnti að hún væri að glíma við krabbamein

Kamilla Bretadrottning sagði í gær að Katrín prinsessa af Wales væri mjög þakklát fyrir þann mikla fjölda skilaboða sem sér hefðu borist eftir að Katrín tilkynnti að hún væri að glíma við krabbamein.

Kamilla var á ferð í Shrewsbury í gær og var vel tekið af almenningi. Tók Kamilla meðal annars við heimagerðum plakötum frá tveimur stúlkum, þar sem prinsessunni var óskað bata, og sagðist Kamilla ætla að varðveita þau vel og afhenda Katrínu við fyrsta tækifæri.