Göngubrú Þetta er mögulegt útlit hins nýja mannvirkis yfir Sæbraut
Göngubrú Þetta er mögulegt útlit hins nýja mannvirkis yfir Sæbraut — Tölvumynd/Gláma/KÍM
Vegagerðin hefur boðið út að nýju samsetningu og uppsetningu færanlegrar göngu- og hjólabrúar yfir Reykjanesbraut (Sæbraut) milli Snekkjuvogs og Tranavogs. Í verkinu felst einnig að setja upp lyftur og byggja tröppur og skjólbyggingu á tröppur og brú

Vegagerðin hefur boðið út að nýju samsetningu og uppsetningu færanlegrar göngu- og hjólabrúar yfir Reykjanesbraut (Sæbraut) milli Snekkjuvogs og Tranavogs.

Í verkinu felst einnig að setja upp lyftur og byggja tröppur og skjólbyggingu á tröppur og brú. Verkinu tilheyra ofanvatnslagnir, stíglýsing og yfirborðsfrágangur við brúarenda. Verkið var áður boðið út í fyrrasumar og tilboð opnuð í september.

Eina tilboðið sem barst var frá Eykt ehf. Reykjavík og hljóðaði upp á tæpar 379 milljónir króna. Var það 78% yfir áætluðum verktakakostnaði, sem var var 212,6 milljónir. Ákveðið var að hafna tilboðinu og bjóða verkið út að nýju.

Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 23. apríl nk. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. nóvember 2024.

Brúnni er ætlað að auka umferðaröryggi, ekki síst fyrir skólabörn, í hinni nýju Vogabyggð við Elliðaárvog. Framkvæmdin er samvinnuverkefni Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar. sisi@mbl.is