Staðan á íslensku sjónvarpsefni er góð að mati leikkonunnar Ólafíu Hrannar Jónsdóttur, það er mikið líf og framleiðsla en einnig útlend verkefni sem koma til landsins. Þá er hún aðallega að tala um þættina True Detective með Jodie Foster í aðalhlutverki

Staðan á íslensku sjónvarpsefni er góð að mati leikkonunnar Ólafíu Hrannar Jónsdóttur, það er mikið líf og framleiðsla en einnig útlend verkefni sem koma til landsins. Þá er hún aðallega að tala um þættina True Detective með Jodie Foster í aðalhlutverki. „Ég hef alltaf litið mikið upp til Jodie Foster. Hún er jafngömul mér og ég man þegar ég sá hana fyrst á tjaldi, þá var ég búin að ákveða að verða leikkona. En þegar ég sá hana þá sökk ég inn í hana og hún hefur alltaf skipt mig máli á skrýtinn hátt.“ Lestu meira á K100.is.